Ökumaður var fluttur á slysadeild eftir að hafa misst stjórn á bifreið sinni við Bakkaflöt í Garðabæ og endaði í garði við götuna, á þriðjudaginn í síðustu viku.
Tólf manns slösuðust í níu umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Sama dag var bifreið ekið á barn á Skólavörðustíg, en barnið hljóp út á götuna fram hjá blindu horni að sögn vitnis og er talið hafa sloppið við alvarleg meiðsl.
Þá féll farþegi út úr bifreið á hringtorgi á Reykjanesbraut við Lækjargötu á laugardaginn. Var hann fluttur á slysadeild í kjölfarið.
Þrjú rafmagnslaupahjólaslys urðu um verslunarmannahelgina og voru tveir grunaðir um að hafa ekið hjólunum undir áhrifum áfengis en allir voru fluttir á slysadeild.