Mótorhjól skilið eftir í Meradölum

Mikið hefur verið um utanvegaakstur í kringum Meradali þar sem …
Mikið hefur verið um utanvegaakstur í kringum Meradali þar sem gýs um þessar mundir. mbl.is/Arnþór

Mikið hefur verið um ólöglegan utanvegaakstur í kringum gosstöðvarnar í Meradölum frá því að eldgosið hófst í gær. Þetta segir Bogi Adolfsson, formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar, í samtali við mbl.is.

„Það hefur verið mjög mikið um bíla, fjórhjól og aðallega krossara,“ segir hann. Hann bætir við að einn hafi neyðst til að skilja eftir mótorhjólið sitt upp í fjalli hjá Meradölum. Hann biðlar því til fólks að hugsa sig tvisvar um áður en það tekur upp á einhverju í þessum dúr.

„Hefurðu heyrt um Mission Impossible?“

Bogi bendir á að mikill skaði geti fylgt utanvegaakstri og auk þess geti það bæði ógnað náttúru og öryggi fólks á svæðinu. 

„Það er ekki gott þegar að menn eru búnir að spæna upp alla leiðina, þá losnar um allt saman og þá getur verið erfiðara fyrir okkur að komast upp.“

Spurður hvernig hægt sé að koma í veg fyrir áframhaldandi utanvegaakstur á svæðinu vísar Bogi kíminn í bandarísku kvikmyndina Mission Impossible þar sem að leikarinn Tom Cruise fer á kostum. 

„Hefurðu heyrt um Mission Impossible? Mögulega gæti Tom Cruise spornað eitthvað gegn þessu.“

Hann segir björgunarsveitina einbeita sér að því að hvetja fólk til að fara varlega og til að ganga vel um svæðið. Hann segir þó að ef þetta haldi svona áfram gæti orðið verulegt tjón á jarðveginum á svæðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert