Inga Þóra Pálsdóttir
Íslendingar hafa mætt heldur léttklæddir að gosstöðvunum í Meradölum í dag, en margir hafa gert sér ferð að gosinu og er enn mikil umferð fólks á svæðinu.
„Það er örtröð hérna núna,“ segir Bogi Adolfsson, formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar, í samtali við mbl.is.
Hann segir ekki marga hafa komið með ung börn á svæðið í dag, en ekki er ráðlagt að taka börn með á svæðið vegna gasmengunar.
Björgunarsveitin hefur skipt sér af einhverjum einstaklingum í dag. Helst hefur það verið í tengslum við umferðina að gosstöðvunum.
Að sögn Boga hafa margir erlendir ferðamenn sótt gosstöðvarnar í dag en margir þeirra koma með rútu á svæðið. Hann segir marga Íslendinga sem hafa sótt svæðið í dag hafa verið heldur léttklædda. Ítrekar hann mikilvægi þess að klæða sig vel.
„Nike er ekki alltaf svarið,“ segir Bogi.
Eins og mbl.is hefur greint frá hefur björgunarsveitin tekið saman upplýsingar um hvernig best sé að haga göngunni. Ætla má að gangan að gosstöðvunum sé rúmir 14 kílómetrar fram og til baka. Þá má gera ráð fyrir að hún taki fimm til sex klukkustundir hið minnsta.