Rigning öðru hvoru um helgina

Á Suðurlandi í dag verður að mestu þurt og bjart.
Á Suðurlandi í dag verður að mestu þurt og bjart. mbl.is/Sigurður Bogi

Það verður norðlæg átt 5-13 m/s í dag en 10-15 fyrir austan. Rigning með köflum norðantil en þurrt og bjart að mestu syðra. Svo snýst í hægari vestlæga átt í kvöld og léttir til á Norður- og Norðausturlandi. Hiti 10 til 17 stig en svalara norðaustantil. Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands.


Á morgun verður suðlæg eða breytileg átt 3-8 og víða bjartviðri. Skýjað verður á vestanverðu landinu með dálítilli rigningu eftir hádegi. Hiti yfirleitt 13 til 18 stig.

Suðvestanátt með rigningu öðru hvoru um helgina. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast norðaustantil.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert