Jarðskjálfti af stærðinni 3,4 mældist klukkan 09.26 í morgun. Upptök hans voru um 2,2 kílómetra suðvestur af Keili á fjögurra kílómetra dýpi, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni í morgun hafa um helmingi færri skjálftar gengið yfir frá miðnætti í dag samanborið við sama tíma í gær.
Eftir að gosið hófst hafa vísindamenn spáð því að það dragi úr jarðskjálftavirkni á svæðinu.