Lögreglu á lögreglustöð 3, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti, barst í dag tilkynning um einstakling í strætóskýli „í svo annarlegu ástandi að hann stóð ekki í fæturna“.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Mun viðkomandi hafa skotið börnum sem þar biðu eftir næsta vagni skelk í bringu.
Einnig var tilkynnt um yfirstaðið innbrot í geymslur fjölbýlishúss í Kópavogi en ekki er vitað hve miklu var stolið né hvort orðið hafi mikið eignatjón.
Þá var tilkynnt um árekstur, en ekki urðu slys á fólki heldur aðeins tjón á bifreiðum.