Stutt í lífshættulegt slys undir gamla hrauninu

Ýmsir styttu sér leið ofan á gamla hrauninu í gær …
Ýmsir styttu sér leið ofan á gamla hrauninu í gær í átt að gosstöðvunum í Meradölum. mbl.is/Ari Páll

Víðir Reyn­is­son, yf­ir­lög­regluþjónn al­manna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, varar fólk við því að stytta sér leið að gosstöðvunum í Meradölum yfir gamla hraunið frá eldgosinu sem var á síðasta ári. 

Fjöldi ábendinga hefur borist af fólki sem hefur stytt sér leið yfir eldra hraunið í staðinn fyrir að labba í grýttum hlíðunum.

Sáu glóð um allt hraunið

Hann bendir á að undir storknuðu hrauninu geti leynst kvika og oft aðeins mjög þunn skel yfir. 

„Ég flaug þarna yfir fyrir eldgosið í fyrrinótt með nætursjónauka og um allt hraunið sáum við í glóð. Kvikan er þarna bara rétt undir yfirborðinu og jarðskjálftarnir hafa væntanlega hrist vel upp í því,“ segir Víðir.

Hann segir því að undir yfirborði gamla hraunsins sé á mörgum stöðum stutt í glóandi kviku og ef illa fer geti orðið lífshættulegt slys. 

„Þetta er um allt hraun, niður allar tungurnar, alla gígana og mjög víða.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert