Bjartviðri bara fyrir Norðaustlendinga

Bjartviðri gæti orðið á Raufarhöfn á Norðausturlandi á morgun.
Bjartviðri gæti orðið á Raufarhöfn á Norðausturlandi á morgun. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Bjart verður víða um landið í dag nema vestanlands, þar þykknar upp þegar um hádegisbil og má auk þess búast við dálítilli rigningu seinnipartinn. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands.

Þar segir að verði suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s en hvessir á vestanverðu landinu, 8-13 m/s í kvöld. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast fyrir austan.

Hvað varðar spána fyrir morgundaginn virðist bjartviðri bara vera í kortunum fyrir Norðaustlendinga. Annars staðar á landinu verður skýjað með lítilsháttar rigningu. Rólegur vindur verður, suðaustlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Hiti yfirleitt á bilinu 12 til 17 stig.

Á sunnudag verður skýjað með köflum en fer að hvessa og fer að rigna sunnan- og vestanlands síðdegis og léttir til norðaustantil. Seinnipartinn verður suðaustan 8-15 m/s en hægari norðan heiða. Hiti á bilinu 10 til 19 stig, hlýjast á Norðausturlandi.

„Eftir helgi er útlit fyrir suðvestlægar áttir með rigningu öðru hvoru, einkum fyrripart vikunnar. Hiti yfirleitt 10 til 17 stig,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert