Mannanafnanefnd hefur nýlega samþykkt beiðnir um ný eiginnöfn og millinöfn og fært á mannanafnaskrá.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, föstudag.
Karlkynsnöfnin Buck, Bliki, Elias, Búálfur, Alf og Adil og kvenkynsnöfnin Vanadís, Marla, Ljósbera og Ísvöld voru samþykkt.
Þá voru millinöfnin Hagg, Ísjak og Worms samþykkt, en það síðastnefnda er hins vegar ekki fært á mannanafnaskrá. Segir nefndin í úrskurði, að heimila beri umsækjanda að bera millinafnið Worms af þeirri ástæðu að langafi hennar bar nafnið.
Beiðni um millinafnið Kobold var hins vegar hafnað á þeirri forsendu að millinafn skuli dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli.