Engin merki um að hraunflæði sé minna

Óbreytt ástand er í eldgosinu í Meradölum frá því í …
Óbreytt ástand er í eldgosinu í Meradölum frá því í gærkvöldi. mbl.is/Ari Páll

Engin sérstök tíðindi eru af eldgosinu í Meradölum frá því í gærkvöldi. Þetta segir Sigríður Kristjánsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is í morgun.

Hún segir mest lítið að frétta af gosstöðvunum í nótt. Engin merki séu um að hraunflæði sé að minnka frá því í gærkvöldi, enda engar sérstakar mælingar á gosstöðvunum yfir nóttina nema þá gasmælingar.

Í gærkvöldi var stríður straum­ur fólks sem vildi sjá nýja eld­gosið í Mera­döl­um þrátt fyr­ir til­mæli al­manna­varna um að láta það vera. Ætla má að gangan að gosinu og til baka sé rúmir 14 kílómetrar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert