Fjórir einstaklingar voru í kvöld í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 17. ágúst í þágu rannsóknar lögreglu á innflutningi á miklu magni af fíkniefnum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Þar segir að fjórmenningarnir hafi verið handteknir í sameiginlegum aðgerðum lögreglu í gær en að þeim komu embætti lögregluliðanna á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara.
Þá segir í tilkynningunni að ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.