Ekki hefur bæst í bókanir á helstu hótelum í Grindavík síðan að það byrjaði að gjósa í Meradölum þrátt fyrir síaukinn ferðamannastraum á svæðið. Ástæða þess er að nú þegar hefur allt verið uppbókað hjá hótelunum í sumar og því ekki rúm fyrir fleiri bókanir.
„Gistipláss í Grindavík er fyrir löngu sprungið. Ég held að það sé bara allt fullt í Grindavík eins og er,“ segir Birta Sól Sigurðardóttir, rekstrarstjóri Harbour View Cottages í Grindavík í samtali við mbl.is.
Friðrik Einarsson framkvæmdastjóri hótelsins Northern Light Inn í Grindavík segir í samtali við mbl.is að þau hjá hótelinu hafi ekki fundið fyrir aukningu í bókunum en er fljótur að taka fram að það sé vegna þess að nú þegar sé fullbókað hjá þeim.
„Það erfitt að segja því við vörum með svo mikið af bókunum áður svo það er ekki mikið á lausu til að bóka núna eftir gosið.“
Hann tekur þó fram að honum sýnist það vera bætast í bókanir fyrir september mánuð. Hann bendir þó á að það er vanalega nóg að gera hjá þeim líka á þeim tíma og erfitt að meta hvort að bókanir séu að aukast vegna breyttra aðstæðna eftir kórónuveirufaraldurinn.
„Eftir að faraldrinum lauk er bókunartíminn miklu styttri en áður og því ekkert óeðlilegt að september sé að byrja að bókast núna í ágúst,“ segir Friðrik óviss hvort orsakasamhengi sé á milli bókana og eldgossins.
Í lokin tekur Friðrik fram að hann reikni með að eldgosið eigi eftir að vera fínasta auglýsing fyrir Grindavík.
Heiða Rakel Guðmundsdóttir, starfsmaður hjá söludeild Silica Hotel og Retreat Blue Lagoon Iceland, segist ekki hafa orðið vör við neinar breytingar þegar það kemur að bókunum eða áhuga á hótelinu eftir að það gaus í Meradölum.
„Við erum búin að vera alveg full bókuð svo þetta er í rauninni engin breyting,“ segir hún.
Hún segir þá ekki mun á bókunum fyrir haustið heldur og bendir á að þau hafi alltaf fengið mikið af bókunum og erfitt sé að auka það enn frekar. „Það munu örugglega koma einhverjar spurningar um ferðir að eldgosinu eins og síðast.“
Hún segir einu raunverulegu breytinguna hingað til vera að fólk spyr hvort það sé öruggt að dvelja á hótelinu vegna eldgossins.
Að mati Birtu rekstrarstjóra Harbour View í Grindavík er ekki mikil breyting fyrir rekstur hótelsins í kjölfar gossins.
„Það hefur ekkert breyst því við erum nú þegar fullbókuð en við erum að fá mikið af fyrirspurnum.“
Hún segir mjög marga hafa haft samband til að athuga hvort að það væri eitthvað gistipláss laust hjá þeim. Hún tekur fram að það sé mjög lítið úrval þegar það kemur að gistingu í Grindavík
„Það er búið að vera fullbókað í sumar og það hefur eitthvað bæst í bókanir í haust.“