Nær ekkert skyggni við gosstöðvarnar

Nær ekkert skyggni er við gosstöðvarnar um þessar mundir. Skjáskot …
Nær ekkert skyggni er við gosstöðvarnar um þessar mundir. Skjáskot af vefmyndavélum mbl.is. mbl.is/skjáskot

Nær ekkert skyggni er við gosstöðvarnar í Meradölum um þessar mundir en á vefmyndavélum mbl.is má sjá að mikil þoka er í dalnum núna og því nær ómögulegt að sjá eldgosið.

Hægt er fylgjast með vefmyndavélum mbl.is hér fyrir neðan.

Ljóst er að ekki er hægt að sjá handa sinna skil á svæðinu en Elín Björk Jón­as­dótt­ir, veður­fræðing­ur hjá Veður­stofu Íslands, segir í samtali við mbl.is að veður fari versnandi með kvöldinu.

Að hennar sögn verður vindur seinna í kvöld um tíu til tólf metrar á sekúndu og mikil úrkoma.

Enn þá verður lágskýjað og lélegt skyggni á gosstöðvunum fram til morguns en þá ætti að sjást betur til gossins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert