Minni gasmengun hefur mælst í Vogum á Reykjanesskaganum í kvöld en búið var að vara við. Frá klukkan sex til tíu var búist við á bilinu 600 til 2.600 míkrógrömmum af skaðlegu gasi á hvern rúmmetra af andrúmslofti.
Að sögn Böðvars Sveinssonar, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands, mæla spárnar alltaf meiri mengun en í raun verður.
„Það hefur miklu minna mælst. Þessar spár sýna alltaf meira en verður,“ segir Böðvar í samtali við mbl.is.
Umsjónarmaður eigna hjá þjónustumiðstöð Voga sagði við mbl.is í dag að allar viðbragðsáætlanir væru fyrir hendi ef gasmengun yrði það mikil að rýma þurfi bæinn. Þar sem gasmengunin er minni en búist var við er ekki útlit fyrir að grípa þurfi til þess.
Íbúar Voga sem mbl.is hefur rætt við segjast ekki hafa fundið fyrir gasmenguninni.