Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, er aftur kominn í sumarfrí eftir að hann var kallaður til vinnu vegna eldgossins í Meradölum. Þetta staðfestir Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, fagstjóri endurreisnar hjá almannavörnum.
„Hann átti að vera í sumarfríi en kom inn því það er betra að hafa fleiri hendur. Við sendum hann aftur í frí í gærkvöldi,“ segir Ingibjörg í samtali við mbl.is.
„Mjög algengt er að fólk sé kallað úr fríi hjá okkur í nokkra daga og svo fer það aftur í frí. Þetta tengist bara atburðum og álagi í vinnunni. Í byrjun atburðar er rosalega mikið sem fer í gang til þess að átta sig á stöðunni og umfangi atburðarins,“ bætir hún við.
Ingibjörg Lilja segir að nú þegar óvissan með eldgosið er minni en í upphafi hafi verið talið óhætt að senda Víði aftur í frí.
Sólberg Svanur Bjarnason, deildarstjóri hjá Almannavörnum, sinnir verkefnum Víðis í fjarveru hans.
Almannavarnir funda nú með sveitarfélögum á Suðurnesjunum. Tilefni fundarins er meðal annars að ræða aðgengi að gosstöðvunum í Meradölum.