Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að gossvæðið í Merardölum verði lokað fyrir aðgengi almennings frá klukkan fimm í fyrramálið, sunnudag, og verður staðan endurmetin seinnipartinn á morgun.
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun þar sem vindur verður suðaustan 13 til 18 metrar á sekúndu. Hvassast er við fjöll og á Reykjanesskaga. Þá verði talsverð eða mikil rigning og lélegt skyggni.
Varasamt er fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og einnig fyrir gangandi og hjólandi ferðalanga. Ekkert ferðaveður verður á gossvæðinu á meðan viðvörunin er í gildi, að því er segir í tilkynningu.