Einar Kristján Jónsson hefur verið ráðinn næsti sveitarstjóri Skaftárhrepps. Reiknað er með að ráðning hans verði staðfest á sveitarstjórnarfundi næsta þriðjudag.
Sunnlenska greinir fyrst frá.
Síðustu átta ár hefur Einar gegnt embætti sveitastjóra Húnavatnshrepps.
Einar Kristján hefur lokið rekstrar- og viðskiptanámi frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Hann gegndi stöðu deildarstjóra rekstrarsviðs Vátryggingafélags Íslands hf. frá 2003-2008 og var rekstrarstjóri Hreinsibíla hf. 2008-2010. Þá var hann verkefnastjóri eignaumsjónar og gæðaeftirlits hjá Frumherja frá 2010-2014.
Sömuleiðis Einar hefur í gegnum tíðina gegnt fjölmörgum trúnaðar- og félagsstörfum.