Íbúar á suðvesturhorni landsins urðu vel varir við jarðskjálfta sem reið yfir klukkan 11:52 í dag. Í yfirförnum niðurstöðum á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að skjálftinn hafi verið 4,1 að stærð.
Upptök hans voru á 5,2 kílómetra dýpi, 4,9 kílómetra norðnorðaustan við Krýsuvík, eða í grennd við Kleifarvatn.
Fyrr í dag mældist skjálfti af stærðinni þrír um 6,7 kílómetrum vestnorðvestur af Grindavík klukkan 10.25.
Í samtali við mbl.is í morgun sagði Einar Bessi Gestsson, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, að skjálftunum virtist fara fækkandi, í kjölfarið þess að það byrjaði að gjósa í Meradölum í síðustu viku.
Einungis 240 skjálftar mældust á Reykjanesskaga á síðasta sólarhringi, sem er talsvert minna en dagana í aðdraganda gossins.
Fréttin hefur verið uppfærð.