Slökkvistarfi vegna elds sem kom upp í hesthúsi í Hafnarfirði er nú lokið. Allir bílar eru komnir á sínar stöðvar og er nú unnið að frágangi tækja og tóla svo allt sé klárt fyrir næsta útkall. Þetta kemur fram í færslu slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.
Þrjár stöðvar slökkviliðsins hafa verið að störfum í morgun eftir að tilkynning barst laust fyrir klukkan sjö í morgun um að eldur logaði í hesthúsi. Þegar fyrsti bíll kom á staðinn var eldur í þaki hússins.
Tveir hestar voru inni í hesthúsabilinu þar sem eldurinn var en slökkviliðsmönnum tókst að bjarga þeim út.
Í viðtali við mbl.is í morgun sagði Hafsteinn Halldórsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, að ekki væri ljóst hvað hefði orsakað eldinn.