Jarðskjálfti af stærðinni 3 reið yfir á Reykjanesskaga rétt fyrir hádegi, eða nánar tiltekið undir norðanverðu Kleifarvatni klukkan 11.43.
Skjálftinn er sá stærsti á skaganum í um tvo sólarhringa, eða frá því skjálfti 4,1 að stærð varð skammt vestur af Kleifarvatni klukkan 11.52 á sunnudag.
Sá fannst víða á suðvesturhorninu, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu.
Vísindamenn hafa sagt að búast megi við áframhaldandi skjálftavirkni í kjölfar eldgossins til að byrja með.