Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Norðurland eystra.
Viðvörunin gildir frá því á miðnætti í kvöld og til hádegis á morgun.
Vinndhviður gætu náð allt að 30-35 m/s á Tröllaskaga, við Eyjafjörð, Skjálfanda, á Melrakkasléttu og Langanesi. Vestan 10-18 m/s.
Veðurstofan bendir á að veðrið sé varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.