Áreitti gangandi vegfarendur

Einstaklingurinn var handtekinn og hann grunaður um vörslu fíkniefna.
Einstaklingurinn var handtekinn og hann grunaður um vörslu fíkniefna. mbl.is/Sigurður Unnar Ragnarsson

Fjögur mál hafa verið skráð í dagbók lögreglu það sem af er degi, þar af tvö á lögreglustöð 1 á Hverfisgötu. Tilkynnt var um innbrot á heimili nærri miðborginni á tólfta tímanum en eftir hádegi var tilkynnt um ofurölvi einstakling í miðbænum sem áreitti gangandi vegfarendur.

Einstaklingurinn var handtekinn og er hann grunaður um vörslu fíkniefna. Hann verður vistaður í fangaklefa þar til hægt verður að taka skýrslu af honum.

Þá var tilkynnt um rusl á Hafnarfjarðarvegi sem gæti skapað hættu fyrir umferð, auk reiðhjólaslyss í Heiðmörk á fimmta tímanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert