Tveir menn voru handteknir vegna ráns í apóteki í gærkvöldi og er málið til rannsóknar.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um verkefni lögreglustöðvar 1, sem sinnir Austurbæ, Vesturbæ og miðborg Reykjavíkur, auk Seltjarnarness.
Þá var brotist inn í fyrirtæki og hefur lögregla hafið rannsókn á innbrotinu.