Nú eru 160 sérfræðingar í heimilislækningum starfandi á landinu og ekki allir í fullu starfi. Margrét Ólafía Tómasdóttir, læknir og formaður Félags íslenskra heimilislækna, FÍH, segir að það þurfi 300 lækna til að heilsugæslustöðvarnar séu fullmannaðar miðað við stærð þjóðfélagsins í dag.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, miðvikudag.
„Læknar vilja sinna sínum skjólstæðingum vel, einbeita sér að langveikum og hafa mikla eftirfylgni, enda er það ávinningur fyrir samfélagið og skilar sér í færri sjúkrahúsinnlögnum, færri komum á bráðamóttökur og færri tilvísunum til sérfræðinga, auk þess að auka lífsgæði og lífslíkur,“ segir Margrét.
„Það er klárlega verið að keyra kerfið töluvert undirmannað. Hópur heimilislækna er lítill og margir eru nýlega komnir á aldur, þannig að við erum í mönnunarlegri lægð. Ég held að það séu um 160 sérfræðingar í heimilislækningum starfandi á landsvísu, og ekki allir í fullu starfi,“ segir Margrét.
Hún bætir við að í dag séu skráðir 2300-2500 manns á hvern heimilislækni. Samkvæmt rannsóknum sé eðlilegur fjöldi 1200-1500 skjólstæðingar.
Margrét segir að nauðsynlega þurfi sambærilegt mönnunarmódel og skilgreint hafi verið fyrir hjúkrunarfræðinga á sjúkrahúsum landsins, fyrir lækna.
„Nú er svo komið að mönnunin sem slík, bæði á heilsugæslunni og á Landspítalanum, er það lítil að það er alls ekki hægt að bæta meira álagi á læknana. Fólk er hreinlega að kikna undir álaginu á öllum sviðum innan heilbrigðiskerfisins.“
Margrét segir mikilvægt að það sé betur skilgreint hvað sé eðlilegt vinnuálag á vinnudegi lækna.
Meira má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.