Reyna að slökkva í glóðum eftir eldsvoða í gærkvöldi

Slökkvilið að störfum. Mynd úr safni.
Slökkvilið að störfum. Mynd úr safni. mbl.is/Margrét Þóra Þórsdóttir

Brunavarnir á Austurlandi sendu í dag tvo slökkviliðsbíla til að slökkva í glóðum sem komu upp eftir eldsvoða í gærkvöldi sem kom upp í útihúsi við bæ í Fellum á Fljótsdalshéraði.

Haraldur Geir Eðvaldsson slökkviliðsstjóri segir eldinn hafa borist úr bíl sem var fyrir utan húsið, en upptök eldsins séu óljós. 

Eldurinn breiddi hratt úr sér

Húsið er gamalt útihús og hefur verið notað sem geymsla, en það er einangrað með mó og torfi og því haldast glóðir lengi í því.

Haraldur segir að orðið töluvert tjón hafi orðið á húsinu en enginn hafi slasast.

„Við héldum að við hefðum náð þessu öllu í gær, en við erum núna að vinna í því að rífa þakið af og komast inn í allar glæður til að geta slökkt eldinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert