Torgið á horni Garðastrætis og Túngötu verður framvegis kennt við Kænugarð/Kýiv, höfuðborg Úkraínu og vígði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri skilti á torginu af því tilefni, ásamt fulltrúum samtakanna Support for Ukraine, í dag kl. 10.30.
Nafngiftin var samþykkt einróma í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar í vor, enda mikill vilji til að sýna samstöðu með úkraínsku þjóðinni. Listafólkið og hjónin Óskar Hallgrímsson og hin úkraínska Mariika Lobyntseva voru fengin til að hanna skiltið.