Vörubíll og fólksbíll rákust saman á Völlunum í Hafnarfirði um klukkan hálfþrjú í dag. Þetta staðfestir Jónas Árnason hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Einn var fluttur af vettvangi með sjúkrabíl, en ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um líðan viðkomandi að svo stöddu.
Jónas segir engar sérstakar umferðartafir hafa orðið vegna árekstursins, enda hafi hann ekki orðið á stofnbraut heldur inn í miðju iðnaðarhverfi.