Blaðamannafélag Íslands fordæmir tölvuárásina sem gerð var á vef Fréttablaðsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Stjórn Blaðamannafélagsins kveðst fordæma allar tilraunir til þess að hafa áhrif á fréttaflutning fjölmiðla og líta á tölvuárásina sem alvarlega tilraun til þess.
Í dag var greint frá því að rússneska sendiráðið hefði farið fram á það við ritstjóra Fréttablaðsins að blaðið bæðist afsökunar á því að birta mynd sem sýnir mann traðka á rússneska fánanum. Myndin er birt í umfjöllun um stríðið í Úkraínu.
Ritstjórn Fréttablaðsins barst einnig hótun í tölvupósti um að ráðist yrði á vef miðilsins ef ekki yrði beðist afsökunar á myndbirtingunni. Samkvæmt upplýsingum frá Sigmundi Erni Rúnarssyni ritstjóra hófst netárásin í morgun en öryggisráðstafanir hægja á vefnum hjá notendum.
Stjórn blaðamannafélagsins fjallaði um málið á fundi sínum í dag og samþykkti svo eftirfarandi ályktun.
„Tölvuárás á vef Fréttablaðsins er alvarleg tilraun til að hafa áhrif á sjálfstæða ritstjórn íslensks fjölmiðils. Samkvæmt bréfi sem ritstjórn blaðsins barst í nótt er árás hótað vegna myndbirtingar Fréttablaðsins í umfjöllun um innrás Rússa í Úkraínu. Áður hefur rússneska sendiráðið á Íslandi krafist afsökunarbeiðni frá ritstjóra Fréttablaðsins vegna myndbirtingarinnar.
Mikilvægi sjálfstæðra og frjálsra fjölmiðla er sérlega mikilvægt í stríðsástandi og fordæmir Blaðamannafélag Íslands allar tilraunir til að hafa áhrif á fréttaflutning fjölmiðla frá stríðinu í Úkraínu. Fréttablaðið hefur kært málið til lögreglu sem hefur það nú til rannsóknar.“
Þar að auki birti Blaðamannafélagið umrædda mynd, sem sýnir einstakling traðka á rússneska fánanum, með ályktuninni.