Rússneska sendiráðinu var afhent svarbréf frá Fréttablaðinu í dag vegna aðdróttana sendiráðsins gegn blaðinu. Þar kemur fram að Fréttablaðið hyggist ekki biðjast afsökunar á myndbirtingu þeirri sem rússneska sendiráðinu misbauð.
Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins.
Tveir erindrekar rússneska sendiráðsins afhentu Fréttablaðinu í morgun bréf þar sem krafist var afsökunarbeiðni frá ritstjórn Fréttablaðsins vegna myndbirtingar á blaðsíðu sex í Fréttablaðinu og á vef blaðsins. Skömmu áður en bréfið barst í hús var gerð netárás á vef Fréttablaðsins, sem hefur verið kærð til lögreglu. Rússneska sendiráðið neitar allri aðkomu að netárásinni og kveðst ekki vita hverjir standi að henni.
Jón Þórisson, forstjóri Torgs ehf., útgáfufélags Fréttablaðsins, og Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri Fréttablaðsins, afhentu rússneska sendiráðinu svarbréfið.
Torg ehf. segir kröfu sendiráðsins fela í sér grófa íhlutun í frjálsa fjölmiðlun á Íslandi. Þá er ítrekað að myndbirtingin teljist sem fréttamynd og lítið gefið fyrir lögfræðileg rök sendiráðsins um að birting hennar falli undir 95. gr. almennra hegningarlaga.
„Um er að ræða fréttamynd sambærilega við þær sem birtar hafa verið ítrekað í vestrænum fjölmiðlum um árabil þar sem fáni verður andlag og táknmynd baráttu þeirra sem telja á sér brotið,“ segir í svarbréfi Torgs ehf.
„Hér á landi flytja fjölmiðlar fréttir af atburðum, innlendum og erlendum, og birta myndir þeim tengdar, án leiðbeininga frá fulltrúum þeirra ríkja sem í hlut eiga. Þá er vert að nefna að áminning um ákvæði í íslenskum almennum hegningarlögum er í besta falli brosleg. Starfsmönnum blaðsins er fullkunnugt um íslensk lög og reglur og óviðeigandi að sendimaður erlends ríkis sé að brýna þær reglur fyrir ríkisborgurum gistiríkisins. Að endingu skal tekið fram að ekki stendur til að biðjast afsökunar á umfjölluninni né birtingu myndarinnar sem um ræðir.“
„Litið er á bréf þitt sem grófa íhlutun í fréttaflutning frjáls fjölmiðils á frjálsu og fullvalda Íslandi. Það verður ekki látið óátalið. Án þess að um það sé vitað virðist sem málflutningur þinn og málaleitan byggist á árangursríkri reynslu í að hafa áhrif á umfjöllun fjölmiðla í heimalandi þínu. Hér er ekki uppi sama aðstaða. Fréttablaðið mun áfram fjalla um atburði þá sem til umfjöllunar eru í nefndri frétt og áfram birta þær myndir sem taldar eru hafa fréttagildi í því samhengi,“ segir að lokum í bréfinu.