Stungið á hjólbarða í Hlíðunum

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögregla var kölluð til vegna einstaklings sem hafði pantað sér veitingar á veitingastað í Háaleitis- og Bústaðahverfi, en viðkomandi gat ekki greitt fyrir veitingarnar. 

Þá var tilkynnt um skemmdarverk í Hlíðunum, þar sem búið var að stinga á hjólbarða bifreiðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Fjórir ökumenn voru svo stoppaðir þar sem þeir notuðu ekki öryggisbelti við akstur bifreiðar.

Báðar bifreiðar óökufærar 

Í Grafarvogi var tilkynnt um slys á skólalóð auk þess sem bifreið var stöðvuð þar sem ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. 

Á Völlunum í Hafnafirði varð umferðaróhapp þar sem vörubíll og fólksbíll lentu saman. Minni háttar meiðsli hlutust af slysinu, en báðar bifreiðar skemmdust og eru því óökufærar. Þá var tilkynnt um vinnuslys á sama svæði. 

Annað umferðaróhapp varð svo í miðbæ Hafnafjarðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert