Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, vonast til þess að heilbrigðisráðherra hætti við áform um að leggja fram frumvarp til breytingar á lögum um ávana- og fíkniefni, sem er í samráðsgátt út morgundaginn.
„Ég bara vona að það þurfi ekki að eyða tíma þingsins í þessa tilgangslausu tillögu."
Frumvarpið lýtur að afnámi refsingar í einstaka tilvikum þegar tiltekinn hópur er með í vörslu sinni dagskammt af tilteknum ávana- og fíkniefnum.
Starfshópi er ætlað að skilgreina dagskammt eða neysluskammt og er áætlað að setja þá skilgreiningu í reglugerð sem lögð verði fram með endurbættu frumvarpi.
Þá er tilgangur frumvarpsins sagður sá að afnema refsingu veikasta hópsins þegar þeir einstaklingar eru með í vörslu sinni dagskammt eða neysluskammt tiltekinna efna í tilteknu magni.
Einungis hafa borist þrjár umsagnir vegna frumvarpsins á samráðsgátt stjórnvalda. Ein er jákvæð en tvær bera á borð áhyggjur af því að frumvarpið sé illframkvæmanlegt, og réttara væri að afnema neysluskammta í öllum tilfellum. Björn Leví sendi sjálfur inn aðra þeirra.
Í tísti í gær hvatti Björn fólk til þess að senda inn umsögn, í þeirri von að starfshópurinn sæi vankanta frumvarpsins og legði árar í bát.
„Það er hvergi að finna neina skilgreiningu á veikasta hópnum í þessum tillögum. Hvernig ætla þau að meta það? Verður einhver skrá yfir þá sem eru veikastir? Verður þetta metið hverju sinni? Ef hópurinn hefði snefil af hugmyndum um hvernig ætti að skilgreina þetta hefðu þær komið fram. Þetta er bara pólitískur blekkingarleikur,“ segir Björn í samtali við mbl.is.
Björn Leví bendir á að það sé refsing í sjálfu sér að þurfa að fara í gegnum málsmeðferð hjá lögreglu, jafnvel þó niðurstaðan leiði í ljós að viðkomandi sé „nægilega veikur“ til þess að vera undanþeginn refsiábyrgð.
„Hvatakerfið í þessu er alveg á haus.“
Frumvarpið sé ekki lítið skref í rétta átt, heldur skref í ranga átt. „Þetta flækir svo margt annað, viðheldur refsingu og býr til tvo hópa þar sem annar er refsilaus en ekki hinn.“
Píratar myndu vilja sjá allsherjar afglæpavæðingu á öllum fíkniefnum, að sögn Björns Leví. „Við höfum áður lögleitt vímuefni, þegar við lögleiddum áfengi. Ég efast um að það vilji nokkur fara til baka til bannáranna.“
Hann segir stríðið gegn fíkniefnum löngu tapað og það virki ekki að banna þau, heldur verðum við að læra að meðhöndla þau.
„Áfengi er, ef eitthvað er, verra en mörg af þessum vímuefnum sem eru bönnuð.“