Aðsókn í Drulluhlaup Krónunnar, fer fram úr öllum væntingum en hlaupið verður haldið í Mosfellsbæ í fyrsta sinn á morgun, laugardaginn 13. ágúst.
Þá hefur verið ákveðið að loka fyrir skráningu og fá allir þátttakendur úthlutaða rástíma í hlaupið síðar í dag.
„Þetta verður rosalegt hlaup með alvöru drullu!,“ segir Valdimar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Kjalarnesings, sem stendur að hlaupinu ásamt UMFÍ og Krónunni.
Undirbúningur hefur staðið yfir í Mosfellsbæ alla vikuna á hlaupabrautinni, sem er í raun 3,5 kílómetra langt drullusvað. Á brautinni verður fjöldi hindrana, á borð við drullupytti og fleiri skemmtilega þröskulda fyrir hlaupara.
Þá er miðað við að allir krakkar, átta ára og eldri, komist auðveldlega í gegnum brautina með aðstoð foreldra eða forráðamanna.
Þau Eva Ruza og Siggi Gunnars halda fjörinu gangandi á meðan viðburðinum stendur, og að hlaupi loknu er ókeypis í Varmárlaug fyrir alla þátttakendur.