Snemma í morgun virtist hraunið í Meradölum renna til suðurs en náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands telur nú að hraunið renni til norðurs.
Náttúruvársérfræðingur sagði í samtali við mbl.is snemma í morgun að lítið hafi verið að frétta af gosinu í Meradölum frá því í gærkvöldi. Gosið líti svipað út, eftir því sem sést á vefmyndavélum.
Í fyrstu sást ekki almennilega hvert hraunið rynni en taldi sérfræðingur það renna til suðurs. Nú telur Veðurstofan að það sé ekki tilfellið heldur renni það til norðurs.
Áhyggjuefni þykir ef hraunið flæðir yfir skarð í Eystri-Meradölum því þar eru um fjórir kílómetrar að Suðurstrandarvegi.