Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir hefur verið ráðin í starf aðstoðarmanns Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra.
Inga Hrefna var aðstoðarmaður Kristjáns Þórs Júlíussonar, fyrrverandi ráðherra, á árunum 2013 til 2021. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins og í dag er hún formaður stjórnar Menntasjóðs námsmanna.
Inga er fædd og uppalin á Seyðisfirði og er gift Þorgeiri Arnari Jónssyni, saman eiga þau tvö börn.
Þórlindur Kjartansson verður áfram aðstoðarmaður utanríkisráðherra, ásamt Ingu Hrefnu.