Leit var hætt í Vestmannaeyjum eftir að ekkert fannst. Þessi ákvörðun var tekin eftir um tveggja klukkustunda leit.
Björgunarfélag Vestmannaeyja og Landhelgisgæslan voru kölluð út í leit á sjó við Vestmannaeyjar eftir að neyðarblys sást þar, en ákveðið var að afturkalla þyrlu og sjóbjörgunarsveit klukkan 00.45. Þetta staðfestir vaktstjóri hjá Landhelgisgæslunni.
Var þá talið að blysið hefði borist frá landi, fremur en sjó. Eftir nánari athugun var ákveðið að hætta leit þar sem lögreglan taldi sig hafa „leitað af sér allan grun“, að sögn Nökkva Óðinssonar hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum.