Yfir 2.000 hafa útskrifast af Háskólabrú

Dúx Háskólabrúar var Unnar Geir Ægisson og fékk hann peningagjöf …
Dúx Háskólabrúar var Unnar Geir Ægisson og fékk hann peningagjöf frá HS orku. Ljósmynd/Keilir

Tuttugu nemendur útskrifuðust af verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar við hátíðlega athöfn sem haldin var í sal Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ á föstudag. 

Hafa nú alls 4.543 einstaklingar útskrifast úr námi við skóla miðstöðvarinnar og er heildarfjöldi útskrifaðra af Háskólabrú frá upphafi nú 2.371 einstaklingur. 

Berglind Kristjánsdóttir, forstöðumaður Háskólabrúar, flutti ávarp og þar sem hún talaði um mikilvægi námsleiðarinnar í íslensku samfélagi. Í nemendahópnum séu metnaðarfullir einstaklingar sem séu þakklátir að fá tækifæri til að ljúka framhaldsmenntun með námsmönnum í sambærilegri stöðu. 

Að loknu ávarpi afhenti hún útskriftarskírteini og viðurkenningarskjöl ásamt Helgu Lind Sigurbergsdóttur, verkefnastjóra Háskólabrúar. 

Unnar Geir Ægisson dúxaði

Dúx Háskólabrúar var Unnar Geir Ægisson og fékk hann peningagjöf frá HS orku sem viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Unnar var með 9,79 í meðaleinkunn sem er næsthæsta einkunn í sögu Háskólabrúar og sú hæsta í sögunni af verk- og raunvísindadeild.

Alexander Grybos, Guðjón Steinn Skúlason og Hlynur Sævarsson hófu athöfnina með frábæru tónlistaratriði. Nanna Kristjana Traustadóttir, framkvæmdastjóri Keilis, flutti ávarp og leiddi athöfnina frá upphafi til enda.

Þá flutti Gísli Hólmar Jóhannesson kennari Háskólabrúar ávarp til útskriftarnemanda fyrir hönd starfsfólks og Gréta Kristín Sveinbjörnsdóttir hélt ræðu fyrir hönd útskriftarnemenda.

Alexander Grybos, Guðjón Steinn Skúlason og Hlynur Sævarsson hófu athöfnina …
Alexander Grybos, Guðjón Steinn Skúlason og Hlynur Sævarsson hófu athöfnina með frábæru tónlistaratriði. Ljósmynd/ Keilir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert