„Þetta eru mikil tímamót“

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra. Ljósmynd/Birgir Ísleifur

Fyrsta íslenska tónlistarstefnan og frumvarp til heildarlaga um tónlist eru nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda, sem stendur til 31.ágúst næstkomandi. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. 

Frumvarpið byggir á nýrri tónlistarstefnu, en grunnur að henni var lögð með skýrslu starfshóps um Tónlistarmiðstöð frá árinu 2021. 

Tímamót í tónlist á Íslandi

„Þetta eru mikil tímamót, en með stefnunni og lögum um tónlist vinnum við að því að efla tónlist á landinu öllu og mörkum í fyrsta sinn heildarramma fyrir málefni tónlistar sem lengi hefur vantað. Með þessu viljum við búa tónlistinni hagstæð skilyrði til að vaxa og dafna um ókomna tíð,“ er haft eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra. 

Við mótun stefnunnar var samráð haft við helstu hagaðila innan tónlistar en einnig við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið um þætti tengda tónlistarnámi.

Í tilkynningu segir að með birtingu í samráðsgátt gefst tækifæri til enn breiðara samráðs þar sem mikilvægt sé að stjórnvöld hafi sem besta innsýn inn í ólík sjónarmið í málefnum tónlistar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert