Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segist taka undir þau áherslumál sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðhera leggur fyrir um málefni Landspítalans.
Heilbrigðisráðherra sagði í samtali við mbl.is í gær, að mönnun sé nú forgangsverkefni í heilbrigðiskerfinu og verið sé að vinna að því að efla vísindastarf. Til að bregðast við manneklu þurfi einnig að efla menntun hér á landi og nú sé unnið að umbótum.
Aðspurður hvort samstaða sé um áherslur heilbrigðisráðherra innan ríkistjórnarinnar, segir hann að málefni Landspítalans hafi ekki verið rætt nýlega.
Fjármálaráðherra segist vilja leggja áherslu á að leysa úr manneklu á Landspítalanum, og ennfremur leggi heilbrigðisráðherra sannfærandi rök fyrir því að starfsfólk á spítala hafi svigrúm til að sinna vísindastarfi.
„Við Íslendingar erum meðal þeirra þjóða sem skapa hvað mest verðmæti á mann í heiminum og höfum alla burði til þess að vera með þjónustu í fremstu röð og þar með talið heilbrigðisþjónustu."
„Samt sem áður erum við eins og aðrar þjóðir að keppast um fólk og mannekla virðist gera heilbrigðisstarfsfólki okkar víða erfitt."