Heilbrigðisráðherra hefur undirritað samning Nýs Landspítala ohf. við Nordic Office of Architecture og EFLU verkfræðistofu vegna fullnaðarhönnunar á nýbyggingu við Grensásdeild Landspítala.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýs Landspítala ohf.
Um er að ræða viðbyggingu endurhæfingarhúsnæðis Grensásdeildar. Hið nýja húsnæði verður um 3.800 fermetrar að stærð og mun rísa að vestanverðu við núverandi aðalbyggingu.
„Hér er enn einn ánægjulegur áfangi í uppbyggingu betra húsnæðis fyrir Landspítala, sjúklinga og starfsmenn. Eftir þessu skrefi á Grensás hefur lengi verið beðið. Á þessum tímamótum er hægt að þakka mörgum, en ég vil þó sérstaklega taka fram þátt Hollvina Grensás sem hafa ötullega stutt við bakið á uppbyggingunni hér á Grensás, innan- og utanhúss. Grensásdeildin er sem endurhæfingarstaður gífurlega mikilægur þáttur í heilbrigðisstarfsemi þjóðarinnar, þess vegna er þetta skref okkur öllum mjög mikilvægt,“ er haft eftir Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra í tilkynningunni.
Í tilkynningunni er einnig haft eftir Gunnari Svavarssyni, framkvæmdastjóra Nýs Landspítala ohf., að nú taki við tólf mánaða hönnunartími. Eftir það hefjist framkvæmdir.
„Nordic Office of Architecture og EFLA verkfræðistofa urðu hlutskörpust í útboði vegna fullnaðarhönnunar, sem byggði á matslíkani og verði. Nú tekur við um tólf mánaða hönnunartími og eftir árið ættum við að sjá vinnuvélar mættar til að byrja á húsgrunni hússins, ef allar áætlanir ganga eftir,“ er haft eftir Gunnari