Fimm tilnefnd sem uppfinningakona ársins

Eyþór og Guðmundur voru þeir einu sem höfðu tök á …
Eyþór og Guðmundur voru þeir einu sem höfðu tök á að vera viðstaddir verðlaunaafhendinguna í Lundúnaborg. Ljósmynd/Aðsend

Fimm Íslendingar voru tilnefndir og hlutu viðurkenningu á vegum GlobalWiin, sem veitir verðlaun fyrir bestu uppfinninguna, eða frumkvöðlaverkefnið, ár hvert. Tvisvar hefur íslensk kona unnið aðalverðlaunin, en þeim fylgir titillinn: „uppfinningakona ársins.“

Þau sem voru tilnefnd að þessu sinni voru þau María Guðmundsdóttir, fyrir tölvuleikinn Parity, Ragnhildur Ágústsdóttir og Júlíus Ingi Jónsson fyrir The Lava Show og loks Guðrún Líf Björnsdóttir og Guðmundur R. Einarsson fyrir Skapalón. 

Verðlaunin ganga út á að gera konur meira sýnilegar í nýsköpun og hvetja þær áfram. Er þetta í fyrsta skipti sem teymi fá viðurkenningu. Því gátu Guðmundur og Júlíus verið meðal tilnefndra, þótt þeir séu ekki konur.

Verðlaunahátíðin hefur ekki farið fram í tvö ár vegna heimsfaraldursins, svo viðurkenningar voru veittar þeim sem tilnefndir hafa verið síðastliðin 2 ár. Guðmundur og Eyþór voru einu Íslendingarnir sem sáu sér fært að vera viðstaddir athöfnina í Lundúnum, en Elínóra Inga Sigurðardóttir, fulltrúi Íslands í framkvæmdastjórn GlobalWiin, úthlutaði viðurkenningunum til hinna í kjölfarið. 

Á myndinni má sjá Ragnhildi og Júlíus taka á móti …
Á myndinni má sjá Ragnhildi og Júlíus taka á móti viðurkenningum frá Elínóru Ingu Sigurðardóttir, sem situr fyrir hönd Íslands í framkvæmdastjórn GlobalWiin. Ljósmynd/Aðsend
Hér afhendir Elínóra viðurkenningu til Margrétar fyrir tölvuleikinn Parity.
Hér afhendir Elínóra viðurkenningu til Margrétar fyrir tölvuleikinn Parity. Ljósmynd/Aðsend
Guðmundur tók á móti verðlaunum fyrir Skapalón.
Guðmundur tók á móti verðlaunum fyrir Skapalón.

Haldið á Íslandi að ári

Þá hlaut Dr. Eyþór Ivar Jónsson viðurkenninguna „Karlkyns meistari“ (e. Male champion), fyrir störf sín í tengslum við frumkvöðlastarf og hvatningu til kvenna í gegnum árin, en hann er einn af stofnendum Akedemias. 

Undirbúningur er þegar hafinn fyrir næstu GlobalWiin verðlaunahátíð, sem mun fara fram á Íslandi í september að ári. 

Fljótlega verður hafist handa við að tilnefna konur til viðurkenningar fyrir nýsköpun. Alþjóðleg dómnefnd fer svo yfir tilnefningarnar og tekur viðtöl við þær sem komast í úrslit. 

Eyþór fékk verðlaun fyrir hvatningu sína.
Eyþór fékk verðlaun fyrir hvatningu sína. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert