Slökkviliðsstjórar samþykkja nýjan kjarasamning

Slökkviliðsmenn að störfum.
Slökkviliðsmenn að störfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Slökkviliðsstjórar og aðrir stjórnendur slökkviliða undirrituðu sinn fyrsta kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga 29. júní og var hann samþykktur í rafrænni kosningu sem lauk í gær.

Þeir sem fengu að kjósa um samninginn voru félagsmenn LSS sem sinna stöðugildum stjórnenda slökkviliða og greiða iðgjald sem nemur 20% starfshlutfalli eða meira, að því er kemur fram í tilkynningu.

Kosningaþátttaka var 71,74%. Alls kusu 33 um kjarasamninginn og niðurstaðan var sú að 31 sagði já, eða 93,94% og 2 sögðu nei, eða 6,06%. Kjarasamningurinn var því samþykktur.

31 slökkviliðsstjóri starfandi á landinu 

Þetta er fyrsti samningurinn sem slökkviliðsstjórar gera fyrir sig. Áður var einungis einn kjarasamningur sem gilti fyrir alla félagsmenn sem unnu fyrir sveitarfélögin.

„Samningsaðilar voru sammála í síðustu kjarasamningaviðræðum að það væri óeðlilegt að undirmenn væru að semja um kjör sinna yfirmanna. Samhliða þessum kjarasamningi er búið að útfæra greiðslu vegna bakvakta sem hefur verið mikil óánægja með á meðal slökkviliðstjóra og búið að endurmeta störf þeirra hjá verkefnastofu Starfsmats, sem er stofnun sem mælir reynslu og menntun til launa. Þessi samningur hefur sama gildistíma og almenni kjarasamningurinn og gildir því til 30. september 2023,“ segir í tilkynningunni.

31 slökkviliðsstjóri er starfandi á landinu auk annarra stjórnenda, sem eru einnig 31 talsins. Sumir kjósa að vera í öðrum stéttarfélögum. Samtals eru 11 slökkviliðsstjórar og 20 varaslökkviliðsstjórar í 50% starfi eða minna. Um 75 starfsstöðvar eru um landið og 900 aðilar sinna slökkvi-og björgunarþjónustu. Rúmlega helmingur þeirra er í tímavinnu og kemur þegar kallið kemur en æfa með reglubundnum hætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert