Tvö stjórnendafélaganna innan KÍ, Félag stjórnenda leikskóla annars vegar og Skólastjórafélag Íslands hins vegar, hafa hvort um sig skrifað undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Skrifað var undir samningana fyrr í dag.
Gildistími beggja samninga er frá 1. janúar á þessu ári til loka september 2023.
Í tilkynningu á vef Kennarasambandsins kemur fram að þrír kynningarfundir verði haldnir í næstu viku til að kynna félagsmönnum Skólastjórafélagsins samningana, en staður og stund fyrir kynningarfundi Félags stjórnenda í leikskóla. Þó er tekið fram að þeir verði einnig kynntir í fjarfundi.
Atkvæðagreiðsla vegna beggja samninganna hefst klukkan 9 að morgni miðvikudagsins 31. ágúst og mun standa til hádegis 5. september.