Rafmagnslaust er vegna háspennubilunar í miðbæ Reykjavíkur. Unnið er að viðgerðum en þeim miðar vel og eru nú þegar flestir notendur komnir með rafmagn aftur. Vonast er til að rafmagn komist aftur á innan stundar samkvæmt tilkynningu Veitna.
Enn fremur er notendum bent á það í tilkynningunni að slökkva á þeim rafmagnstækjum sem ekki slökkva á sér sjálf og geta valdið tjóni þegar rafmagn kemur á að nýju. Það á sérstaklega við um eldavélar, mínútugrill og fleiri hitunartæki. Eins er ráðlagt að slökkva á viðkvæmum tækjum á borð við sjónvörp.