Rík ástæða til að gera alvarlegar athugasemdir

Þjóðminjasafn Íslands.
Þjóðminjasafn Íslands. mbl.is/Gísli Sigurðsson

Stjórn Íslandsdeildar ICOM, Alþjóðaráðs safna, gerir alvarlegar athugasemdir við það hvernig staðið var að ráðningu nýs þjóðminjavarðar sem skipaður var af Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, án auglýsingar.

Stjórnin beinir því til ráðherra að endurskoða starfshætti og vinnuleg ráðuneytisins er kemur að slíkum skipunum og hafa það að sem reglu að bjóða fagfólki tækifæri til þess að sækja um opinberar stöður með fagleg vinnubrögð, gagnsæi og leiðrétti að leiðarljósi.

Þetta kemur fram í tilkynningu stjórnarinnar.

Flutti embættismann á milli

Samkvæmt tilkynningu menningar- viðskiptaráðuneytisins 25. ágúst síðastliðinn skipaði Lilja Dögg Hörpu Þórsdóttur til að gegna embætti þjóðminjavarðar. Þar kom jafnframt fram að ráðherra hefði ákveðið að nýta heimild í lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins til að flytja embættismann milli stofnana.

Var það gert með tilliti til farsællar stjórnunarreynslu Hörpu, víðtækra starfa hennar innan safnageirans og góðrar þekkingar á málefnum Þjóðminjasafnsins.

Ráðningarferlið hefur vakið upp hörð viðbrögð og hefur stjórn Félags fornleifafræðinga meðal annars lýst yfir miklum vonbrigðum með hvernig staðið var að því. Telur stjórnin það hafa verið óvandað, ógegnsætt og metnaðarlaust. 

Ógagnsæ vinnubrögð

Í tilkynningu stjórnar Íslandsdeildar ICOM sem barst í kvöld, kemur fram að rík ástæða sé til að gera alvarlegar athugasemdir við ráðningarferlið og þau ógagnsæju vinnubrögð sem ráðherra viðhefur í málinu. Segir stjórnin vinnubrögðin stangast á við meginreglu sömu laga að opinberlega skuli auglýsa laus embætti og störf hjá ríkinu.

Þá er tekið fram að ekki séu athugasemdir gerðar við hæfi nýskipaðs þjóðminjavarðar eingöngu ráðningaferlið sjálft.

Í tilkynningunni kemur einnig fram að mikilvægt sé að misnota ekki heimild 36. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með þeim áhrifum að svipta aðra hæfa umsækjendur tækifærinu til þess að lýsa framtíðarsýn sinni á starfið og stofnunina. 

„Er í því samhengi bent á 1.11 gr. í siðareglum ICOM, Alþjóðaráðs safna, sem jafnframt er vísað til í 10.7 gr. safnalaga 2011 nr. 141, en í téðri grein siðareglnanna, varðandi starfsmannahald, er kveðið á um að yfirstjórn safns eða safna skuli tryggja að allar ákvarðanir um starfsmannahald séu teknar með viðteknum löglegum hætti,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Undanþáguheimild ekki viðtekin regla

Þá undirstrikar stjórn Íslandsdeildar ICOM jafnframt mikilvægi þess að undanþáguheimild skuli ekki nýtt eða túlkuð sem viðtekin eða almenn regla „sér í lagi við skipun í ábyrgðarstöðu sem slíka, er felur í sér yfirstjórn eins þriggja höfuðsafna íslenska ríkisins, sem hefur enn fremur ekki verið auglýst síðan árið 2000.“

Tekið er fram að sem aðalstjórnandi safnsins gegni þjóðminjavörður lykilhlutverki sbr. 1.12. gr. siðareglna ICOM. Í ljósi þess ber ráðherra að leita allra leiða til að tryggja að ráða þann hæfasta úr hópi umsækjenda, bæði vegna hagsmuna safnsins og samfélagsins.

„Með því að kjósa að auglýsa stöðuna ekki lítur ráðherra fram hjá öllum öðrum sem kæmu til greina í stöðuna, auk þess sem ráðherra rúir stjórnsýsluna trausti starfsvettvangsins, sem og samfélagsins alls, með þessari ráðstöfun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert