Lögreglan stefndi að því að í gær að skrá framburð Kára Kárasonar, sem var skotinn á Blönduósi, á Landspítalanum.
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, staðfesti þetta við Fréttablaðið.
Talið er að framburður Kára geti varpað ljósi á málsatvik. Hann var skotinn með haglabyssu á heimili sínu og er kominn til meðvitundar. Kona hans Eva Hrund Pétursdóttir lést í árásinni.