Ný göngu- og hjólagöng sem unnið er að undir Arnarnesveg, meðfram Hafnarfjarðarveginum, eru á áætlun og er áformað að koma Arnarnesveginum út á Arnarnesið í rétt horf fyrir veturinn. Þá er gert ráð fyrir að hægt verði að opna fyrir umferð gangandi og hjólandi um göngin í janúar og að lokafrágangur verði næsta vor.
Göngin eru hluti af þeim framkvæmdum sem farið hefur verið í eða fara á í á næstu árum samkvæmt samgöngusáttmála sem undirritaður var á milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins. Þegar þau verða komin í notkun geta gangandi og hjólandi vegfarendur komist frá Garðabæ yfir Arnarnes og langleiðina upp Kópavogshálsinn án þess að þurfa að þvera umferðargötu.
Upphaflega var framkvæmdin boðin út í vetur, en ekkert tilboð barst þá. Katrín Halldórsdóttir, sérfræðingur fyrir höfuðborgarsvæðið hjá Vegagerðinni og verkefnastjóri þessa verkefnis, segir í samtali við mbl.is að aftur hafi verið farið í útboð með örlítið rýmkuðum ramma og þá hafi boðist tilboð í verkið. Þetta hafi hins vegar örlítið seinkað framkvæmdinni, en upphaflega var gert ráð fyrir að opna göngin fyrir umferð fyrir lok nóvember í staðinn fyrir lok janúar á næsta ár.
Framkvæmdir hófust fyrr í sumar og var framkvæmdinni skipt upp í norður- og suðurverkefni. Var byrjað norðan megin á framkvæmdinni. Við það þurfði að rjúfa hefðbundna bílaumferð eftir akveginum, en í staðin var sett hjáleið inn á Arnarnesið örlítið sunnar. Nú er unnið að því að slá upp veggjum og steypa þá upp norðan megin og verður loftið í kjölfarið sett á og vinna við að ganga frá veginum yfir. Katrín segir að í kjölfarið verði hægt að opna fyrir umferð aftur um Arnarnesveginn á þessum stað og þá hefjist framkvæmdir við suðurhluta verkefnisins, en í miðjunni er jafnframt gert ráð fyrir ljósop á þessi 30 metra löngu göng.
Katrín segir að hingað til hafi mest allt gengið vel og að verkið sé svo gott sem á áætlun og að gert sé ráð fyrir að það klárist á tilsettum tíma. „Þá verður hægt að hjóla þarna í gegn í janúar á nagladekkjum,“ segir hún.
Leiðin yfir Arnarnesið er ein af fjölförnustu stofnæðum fyrir hjólandi umferð á höfuðborgarsvæðinu í dag, en hún tengir m.a. Reykjavík við Garðabæ og Hafnarfjörð. Á þeirri leið þarf þó að fara yfir bæði Arnarneshálsinn og Kópavogshálsinn þar sem bæði nokkur hækkun er og fólk þarf að þvera umferðargötur.
Líkt og mbl.is hefur fjallað um áður eru fleiri framkvæmdir í gangi í tengslum við göngu- og hjólastíga sem Vegagerðin hefur umsjón með. Til viðbótar er svo fjöldi verkefna í gangi á vegum sveitarfélaganna sem Vegagerðin kemur ekki nærri.
Þannig er undirbúningur í gangi fyrir brú yfir Dimmu, þ.e. Elliðaárnar rétt fyrir neðan Breiðholtsbraut. Vegna laxveiði má ekki framkvæma á svæðinu milli október og apríl, en Katrín segist vonast til þess að undirstöður fyrir brúnna verði komnar fyrir vorið. Þá verði í kjölfarið hægt að leggja gólfið á brúnna án tímapressunnar.
Við Ásbraut í Kópavogi er jafnfram horft til þess að bæta hjólainnviði og gera betri hjólastíg sem liggur þá niður frá Hamraborg að Kársnesbraut. Katrín segir verkhönnun í gangi og að stutt sé í útboð verksins. „Við stefnum á framkvæmdir þar næsta vor.“ Þá segir hún að bæting á leiðinni um Kópavoginn á milli Arnarness og Kársness vera í undirbúningi, en að tímarammi fyrir það verkefni liggi ekki alveg fyrir.
Í sumar hafa einnig átt sér stað framkvæmdir við Strandgötu í Hafnarfirði og segir Katrín þær vera á áætlun og að áformað sé að þær klárist í haust.
Talsvert hefur verið rætt um framkvæmdir við Litluhlíð, en þar voru gerð göng undir götuna sem tengir þá Veðurstofuhæðina við Skógarhlíð. Búið er að opna fyrir umferð þar um en frágangi er ekki lokið. Katrín segir að í framhaldinu eigi nú að fara í verkhönnun á hjólastíg niður Skógarhlíðina og svo sé áformað að fara í útboð eftir áramót. „Vonandi verður þetta vorframkvæmd,“ segir hún.
Við Ánanaust er einnig stefnt á framkvæmdir í haust, en þar hefur grjótavarnargarður verið endurnýjaður. Tengja á aðskilda göngu- og hjólastíga sem liggja meðfram öllum Eiðsgranda og við Grandann og Mýrargötuna.