Tré fóru upp með rótum og gróður skemmdist er kaldavatnslögn fór í sundur með þeim afleiðingum að vatnselgur myndaðist í Hvassaleitinu í Reykjavík í gærkvöldi.
Líkt og mbl.is hefur greint frá liggur ekki fyrir hvað olli því að vatnslögnin hafi farið í sundur.
Vatn flæddi inn í kjallara tveggja fjölbýlishúsa og bílskúra í hverfinu.