Kom síðastur í mark í eigin hlaupi

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Ólafur Oddasson, hlupu saman …
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Ólafur Oddasson, hlupu saman í 5 kílómetra hlaupinu og komu síðastir í mark. Ljósmynd/UMFÍ

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var ásamt Ólafi Oddssyni og hlaupafélögum þeirra síðastur í mark í Forsetahlaupi UMFÍ, sem haldið var á Álftanesi í gærmorgun. Þetta var í fyrsta sinn sem hlaupið er haldið, og lék veðrið við þátttakendur sem hlupu um Álftanesið. 

Í tilkynningu frá UMFÍ kemur fram að rúmlega 200 þátttakendur hafi verið skráðir til leiks, en í boði var annars vegar að hlaupa eina mílu, eða sem nemur um 1,6 kílómetrum, og að hlaupa 5 kílómetra. Fyrra hlaupið var í nágrenni íþróttamiðstöðvarinnar á Álftanesi en hitt var öllu stærri hringur sem náði að hlaðinu á Bessastöðum þar sem hlaupararnir sneru við til baka. 

Ákváðu nokkrir að taka þátt í báðum hlaupum, og var Guðni einn af þeim. Þá afhenti hann verðlaun í fjórum flokkum, karla- og kvennaflokki og stúlkna og ungmennaflokki þátttakenda undir 16 ára aldri. Að hlaupum loknum var þátttakendum og öllum gestum viðburðarins boðið upp á pylsur og með því til að kæla sig niður eftir hlaupin í sólinni.

Í tilkynningunni kemur fram að Forsetahlaup UMFÍ hafi verið síðasti viðburðurinn í Íþróttaveislu UMFÍ og UMSK sem haldin var í sumar, en hinir viðburðirnir voru Drulluhlaup Krónunnar og Hundahlaup UMFÍ og Non-stop dogwear. Fóru þeir fram í ágúst og heppnuðust afar vel.

Sjálfboðaliðar á vegum UMFÍ sáu um að vísa hlaupurum rétta …
Sjálfboðaliðar á vegum UMFÍ sáu um að vísa hlaupurum rétta leið. Ljósmynd/UMFÍ
Forsetinn afhenti verðlaun að hlaupi loknu, en hann tók þátt …
Forsetinn afhenti verðlaun að hlaupi loknu, en hann tók þátt í báðum hlaupum sem í boði voru. Ljósmynd/UMFÍ
Hlauparar nutu sín vel í góða veðrinu í gærmorgun.
Hlauparar nutu sín vel í góða veðrinu í gærmorgun. Ljósmynd/UMFÍ
Boðið var upp á pylsur að hlaupi loknu.
Boðið var upp á pylsur að hlaupi loknu. Ljósmynd/UMFÍ
Hlauparar fengu viðurkenningu að hlaupi loknu.
Hlauparar fengu viðurkenningu að hlaupi loknu. Ljósmynd/UMFÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert