Hrund verður framkvæmdastjóri til áramóta

Hrund Scheving Thorsteinsson verður framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala frá 26. …
Hrund Scheving Thorsteinsson verður framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala frá 26. september til áramóta. Ljósmynd/Landspítalinn

Hrund Scheving Thorsteinsson mun gegna stöðu framkvæmdastjóra hjúkrunar á Landspítala frá 26. september og til áramóta, þar til gengið hefur verið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra í stað Sigríðar Gunnarsdóttur. 

Í tilkynningu á vef Landspítala kemur fram að Hrund hafi útskrifast sem hjúkrunafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1982, með meistaragráðu í hjúkrunarfræði frá University of Wisconsin – Madison árið 1990 og með doktorsgráðu í hjúkrunarfræði frá hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands árið 2013. 

Hún hefur starfað á ýmsum deildum Landspítala í fjóra áratugi, lengst af við stjórnun. Auk þess hefur hún sinnt kennslu við hjúkrunarfræðideild HÍ. 

Hún starfar nú sem deildarstjóri menntadeildar spítalans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert