Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á skotárás í Miðvangi í Hafnarfirði í júní er við það að ljúka og verður málið sent til ákærusviðs lögreglunnar í kjölfarið. Þá var maður, sem handtekinn var vegna málsins, úrskurðaður í áframhaldandi vistun í fjórar vikur frá og með 17. ágúst, en þá rann fyrri úrskurður út.
Þetta staðfestir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri deild lögreglunnar, í samtali við mbl.is.
Árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps. Maðurinn, sem grunaður er um að hafa skotið á tvær kyrrstæðar bifreiðar milli fjölbýlishúss og leikskóla, er á sjötugsaldri. Af ummerkjunum á bílnum sem skot hæfði, má leiða líkur að því að maðurinn hafi notað riffil.
Vistun á viðeigandi stofnun er hliðstætt úrræði við gæsluvarðhald og þurfa því skilyrði fyrir gæsluvarðhaldi að vera uppfyllt svo unnt sé að úrskurða einstakling í slíka vistun, en úrræðinu er beitt í undantekningartilfellum.